![]() |
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Reykholt tilnefnt til umhverfis-verðlauna
Þann 4. nóvember sl. tilnefndi Umhverfis- og landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar Reykholt og umhverfi þess til umhverfisverðlauna Ferðamálastofu. Þessi tilnefning er mikið fagnaðarefni, enda er búið að leggja gríðarlega vinnu í umhverfismálin hér á staðnum.Meira
Snorri - ævisaga Snorra Sturlusonar 1179-1241 eftir Óskar Guðmundsson er komin út. JPV útgáfa gefur út fyrstu heildstæðu ævisöguna um sagnaritarann.Meira
Frá kálfskinni til tölvu Norræn ráðstefna um tungumál lítilla málsvæða, málstefnur, norræn tjáskipti, þýðingar og táknmál, haldin 2.-3. október 2009.www.sprog.is
Viking Congress Alþjóðleg ráðstefna sérfræðinga í rannsóknum á sviði víkingatímans.Haldin 17.-23. ágúst.www.vikingcongress.com
Vinnuskólakrakkar og fleiri starfsmenn hafa nóg að gera við hirðu á staðnum. Garður umhverfis Reykholt er orðinn stór með nokkrum útivistarreitum og metnaðurinn mikill við að halda þeim snyrtilegum. Nýja gatan í Reykholti, Hallveigartröð var malbikuð í sumar og stöðugt er verið að bæta stíga í skóginum ofan við staðinn, enda kemur fólk í Reykholt að stórum hluta til að njóta útiveru. |
![]() |
Fagurt nýtt altari
Styrkur frá Danmörku
|
|
Janúar 2009
|
Starfsáætlun Snorrastofu 2008
Starfsáætlun Snorrastofu 2007
15.
|
Hallveig ehf. í Reykholti Sýning í gömlu Reykholtskirkju á einleik um Hallveigu Ormsdóttur seinni konu og uppáhaldsfrillu Snorra Sturlusonar.Laugardagur 11. september kl. 17Laugardagur 18. september kl. 17Laugardagur 25. september kl. 17
Miðapantanir í síma 690-1939, eða:http://hallveig.sida.is/midapantanir/
Sýningin tekur 50 mínútur i flutningi. Miðaverð er 2500 kr.Á Fosshóteli er boðið upp á veitingar fyrir leikhúsgesti. |
![]() |
Leikurinn fjallar um ævi Hallveigar Ormsdóttur sem var seinni kona Snorra Sturlusonar og bjó með honum í Reykholti þar til hún lést rétt rúmlega fertug að aldri. Það er leikkonan Margrét Ákadóttir sem fer með hlutverk Hallveigar, en leikinn skrifaði Hlín Agnarsdóttir í samvinnu við Margréti. Leikstjóri er Inga Bjarnason. Búning og gervi hannaði Fitore Berisha. Aðstoðarmaður leikstjóra á æfingum var Guðrún Magnúsdóttir og Guðrún Þórðardóttir sá um saumaskap á búning og höfuðbúnaði. Ljósmyndun Ingi Þ. Bjarnason.Ekki eru til miklar heimildir um Hallveigu Ormsdóttur en hún var dóttir Orms Jónssonar Loftssonar í Odda á Rangárvöllum og fyrri maður hennar var Björn Þorvaldsson Gissurarsonar í Hruna. Talið er að Hallveig hafi fæðst um aldamótin 1200 og látist í Reykholti á Jakobsmessu þann 25. júlí 1241. Fáar heimildir eru til um ævi Hallveigar og hjónaband hennar og Snorra en þó er vitað að hún var honum mikill harmdauði. Snorri var veginn tæpum þremur mánuðum eftir dauða hennar.Í nýlegri ævisögu um Snorra Sturluson eftir Óskar Guðmundsson er að finna þær heimildir sem einleikurinn byggir á. Hallveig Ormsdóttir var vel lesin og menntuð kona komin af evrópskum höfðingja- og konungsættum. Þegar leikurinn hefst er hún stödd í Reykholtskirkju 810 ára gömul og hefur stolist til að lesa það sem sagt er um hana og Snorra í nýjustu ævisögunni um skáldið, lögspekinginn og kvennamanninn Snorra. |
![]() |
|

Framtíðarskipulag Reykholts
Deiliskipulag íbúðarlóða og viðbygginga við eldri hús í Reykholti |
Formminjar frumtillaga |
Grunnmynd kjallari |
Sýningarsalir |
Grunnmynd 1. hæð |
Sýningarsalir |
Reykholt framtíðarskipulag |
|
| ||
|
| ||
|
| ||
|
| ||
|
| ||
|
| ||
|
| ||
|
| ||
|
VÍKINGASPIL | ||
|
ALL SENSES | ||
|
SAGA TRAILS | ||
|
| ||
|
|
|
Snorrastofa | Sími: 433 8000 | 320 Reykholt | snorrastofa
|